Icelandic
Birt: 2019-03-12 11:13:41 CET
Fagfjárfestasjóðurinn Landsbréf – BÚS I
Lýsing/tilkynning um birtingu lýsingar

Leiðrétting: Birting lýsingar fagfjárfestasjóðsins Landsbréfa - BÚS I - Frétt birt: 2019-03-12 10:49:08 CET

Leiðrétting: Fyrri tilkynning fór í rangan fréttaflokk

Fagfjárfestasjóðurinn Landsbréf - BÚS I, kt. 651116-9960, Borgartúni  33, 105 Reykjavík Íslandi, hefur birt lýsingu sem samanstendur af verðbréfalýsingu dagsettri 11. mars 2019 og útgefandalýsingu dagsettri 11. mars 2019. Lýsingin er birt í tengslum við umsókn um stækkun skuldabréfaflokksins BUS 56 sem skráður er á Aðalmarkað Nasdaq Iceland hf.  Lýsingin  hefur verið staðfest af Fjármálaeftirlitinu, í samræmi við ákvæði laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007.

Lýsingin er á íslensku og er birt á rafrænu formi á vef Landsbréfa hf., rekstrarfélags Landsbréfa BÚS - I, www.landsbref.is/skrad-skuldabref. Fjárfestar geta einnig nálgast útprentuð eintök af lýsingunni sér að kostnaðarlausu hjá Landsbréfum - BÚS I, Borgartúni 33, 105 Reykjavík.

Skuldabréfaflokkurinn var stækkaður um 3.740.000.000 krónur að nafnvirði. Útboðið taldist ekki almennt útboð í skilningi 43. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti og var útgáfa skuldabréfanna einungis boðin útvöldum fagfjárfestum til kaups, í samræmi við  9. tl. 2 gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Sótt verður um töku stækkunarinnar að nafnvirði 3.740.000.000 krónur til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. Stærð skuldabréfaflokksins eftir stækkun verður 11.840.000.000 krónur. Skuldabréfin eru gefin út rafrænt í kerfi Nasdaq verðbréfamiðstöðvar hf. og eru með ISIN númer IS0000028173.

Nasdaq Iceland hf. mun birta tilkynningu um töku stækkunarinnar til viðskipta og hvenær viðskipti með þau geti hafist með a.m.k. eins viðskiptadags fyrirvara.

Viðhengi: Lýsing

Frekari upplýsinga má fá á skrifstofu Landsbréfa Borgartúni 33 í Reykjavík

Reykjavík 11. mars 2019

Viðhengi


2019-03-11 Lysing Landsbref BUS I.PDF