Icelandic
Birt: 2019-03-05 15:29:58 CET
TM hf.
Boðun hluthafafundar

Aðalfundur TM 14. mars 2019 - Endanlegar tillögur og ályktanir

Samkvæmt samþykktum Tryggingamiðstöðvarinnar hf. skal a.m.k. þremur dögum fyrir hluthafafund birta upplýsingar um þær tillögur og ályktanir sem lagðar verða fyrir fundinn og eftir atvikum endurskoðaða dagskrá fundarins.  Engar kröfur um tiltekin mál eða tillögur bárust frá hluthöfum innan tilskilins frests þar um sem var 4. mars sl.

Eru endanlegar tillögur og ályktanir vegna aðalfundar TM 2019 því óbreyttar frá fyrri tilkynningu félagsins 19. febrúar sl.

Endanlegar tillögur og ályktanir fyrir aðalfund TM 2019 í heild sinni er að finna í meðfylgjandi viðhengi.

Viðhengi


Dagskra og tillogur_aalfundur 2019.pdf