English Icelandic
Birt: 2019-03-04 17:15:48 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstöður víxlaútboðs

Landsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur víxlaflokkum; LBANK 190812, LBANK 190910 og LBANK 200310.

Heildartilboð í útboðinu voru 24 talsins og námu samtals 2.780 m. kr.

Átta tilboð að fjárhæð 660 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 190812 og voru vextir tilboða á bilinu 4,80%-4,90%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 260 m. kr. á 4,85% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,9674.

Fjórtán tilboð að fjárhæð 1.780 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 190910 og voru vextir tilboða á bilinu 4,80%-4,96%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 900 m. kr. á 4,85% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,5939.

Tvö tilboð að fjárhæð 340 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 200310 og voru vextir tilboða á bilinu 5,09%-5,10%. Hvorugu tilboði var tekið í flokkinn.

Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 11. mars 2019.

Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar.