English Icelandic
Birt: 2019-02-28 12:21:33 CET
Landsvirkjun
Ársreikningur

Ársreikningur Landsvirkjunar 2018

Annað metár í orkuvinnslu og rekstrarafkomu

Helstu atriði ársreiknings

  • Rekstrartekjur námu 533,9 milljónum USD (61,9 ma.kr.) og hækka um 50,8 milljónir USD frá 2017.
  • EBITDA nam 389,9 milljónum USD (45,2 ma.kr.). EBITDA hlutfall er 73,0% af tekjum, en var 71,5% árið áður.
  • Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam 184,1 milljón USD (21,4 ma.kr.), en var 153,4 milljónir USD árið áður og hækkar því um 20,0% milli ára.
  • Hagnaður ársins var 121,0 milljón USD (14,0 ma.kr.) en var 108,0 milljónir USD árið áður.
  • Nettó skuldir voru í árslok 1.884,6 milljónir USD (218,6 ma.kr.) og lækkuðu um 158,0 milljónir USD á árinu 2018.
  • Handbært fé frá rekstri nam 295,8 milljónum USD (34,3 ma.kr.), 6,4% hækkun frá 2017.

Hörður Arnarson, forstjóri:

„Árið 2018 var gott í rekstri Landsvirkjunar. Tekjur hækkuðu um 11% milli ára og hafa aldrei verið meiri, en þar munaði mestu um aukið selt magn og hækkandi álverð.

Átjánda aflstöð Landsvirkjunar, Búrfellsstöð II, var tekin í gagnið á árinu, auk þess sem annar áfangi þeirrar sautjándu, á Þeistareykjum, hóf rekstur. Raforkusalan jókst um 430 gígavattstundir frá fyrra ári og var um 14,8 teravattstundir.

Áfram bættist við hóp viðskiptavina stórnotenda hjá fyrirtækinu á árinu. Gerðir voru rafmagnssamningar við tvo aðila í gagnaversiðnaði; Advania Data Centers og Etix Everywhere Iceland. Hópur viðskiptavina er nú fjölbreyttari en nokkru sinni fyrr.

Eftir framkvæmdir síðustu ára, sem að mestu voru fjármagnaðar með sjóðstreymi, halda nettó skuldir nú áfram að lækka og lækkuðu þær á á síðasta ári um 158 milljónir Bandaríkjadollara. Hlutfall nettó skulda á móti EBITDA-rekstrarhagnaði er nú komið niður í 4,8 og hefur skuldsetning á þennan mælikvarða aldrei verið minni í sögu fyrirtækisins.

Nú hafa skapast skilyrði til að auka arðgreiðslur Landsvirkjunar í skrefum til eiganda síns, en síðastliðinn áratug hefur fyrirtækið fjárfest fyrir um einn milljarð dollara í nýjum orkumannvirkjum og á sama tíma greitt niður skuldir fyrir einn milljarð dollara.“

Viðhengi


Arsreikningur LV 2018 samsta.pdf
Frettatilkynning.pdf