Icelandic
Birt: 2019-02-26 18:38:26 CET
Reitir fasteignafélag hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

REITIR: Niðurstaða skuldabréfaútboðs 26. febrúar 2019

Lokuðu útboði Reita fasteignafélags hf. á skuldabréfum þann 26. febrúar 2019 er lokið. Boðin voru til sölu skuldabréf í áður útgefnum og skráðum flokkum, REITIR151244, REITIR151124 og REITIR 22. Tilgangur skuldabréfaútgáfu félagsins er eftir atvikum endurfjármögnun á hluta núverandi skulda félagsins, til fjármögnunar fasteignaþróunar og mögulegra fasteignakaupa sem og til rekstrarþarfa.

Alls bárust tilboð í tvo flokka að nafnvirði 5.142 milljóna króna. Var ákveðið að taka tilboðum að nafnvirði 950 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 3,45% í flokknum REITIR151244 og að nafnvirði 1.100 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 2,60% í flokknum REITIR151124. Engin tilboð bárust í flokkinn REITIR 22.

Heildarstærð ofangreindra flokka verður eftirfarandi:

Flokkur: Áður útgefið:  Eftir útgáfu nú:
REITIR151244 37.405.200.00038.355.200.000
REITIR151124 8.350.000.0009.450.000.000
REITIR 22 1.155.000.0001.155.000.000

Gjalddagi áskrifta og afhending bréfa er fyrirhuguð föstudaginn 1. mars 2019 og óskað verður eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland sama dag.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669-4416.