Fagfjárfestasjóðurinn Landsbréf BÚS I. Niðurstaða skuldabréfaútboðs 14. febrúar 2019Fagfjárfestasjóðurinn Landsbréf- BÚS I lauk í dag útboði á skuldabréfum í flokknum BUS 56.
Skuldabréfaflokkurinn er verðtryggður, til 40 ára, með jöfnum greiðslum á föstum 3,55% ársvöxtum. Skuldabréfin fela ekki í sér bein veð en allar eignir fagfjárfestasjóðsins Landsbréf BÚS I standa til tryggingar á greiðslu skuldabréfanna. Boðin voru til sölu skuldabréf fyrir allt að 5.000 milljónir króna með fastri ávöxtunarkröfu 3,55%. Alls bárust 9 tilboð í skuldabréfaflokkinn að nafnvirði 3.740 milljónir króna og var þeim öllum tekið. Heildarstærð skuldabréfaflokksins BUS 56 að sölu lokinni verður 11.840 milljónir króna að nafnvirði. Afrakstri skuldabréfaútboðsins verður varið til endurfjármögnunar á hluta núverandi skulda og nýrra verkefna Búseta hsf. Gjalddagi og afhending skuldabréfanna er fyrirhuguð í viku 10-11 og sótt verður um að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. þann sama dag og gjalddagi og afhending á sér stað. Kauphöll mun tilkynna um fyrirhugaða stækkun í kauphöll með eins dags fyrirvara. Markaðsviðskipti Landsbankans höfðu umsjón með sölu skuldabréfanna. Nánari upplýsingar veita: Ingvar Karlsson, sjóðsstjóri fagfjárfestasjóðsins Landsbréf - BÚS I, í síma 410-2518 eða í gegnum netfangið: ingvar.karlsson@landsbref.is Gunnar S. Tryggvason, s: 410 6709 eða í gegnum netfang Markaðsviðskipta Landsbankans vegna útboðsins: verdbrefamidlun@landsbankinn.is
|