English Icelandic
Birt: 2019-02-06 19:38:56 CET
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Arion banki hf. lauk í dag útboði á tveimur nýjum markflokkum sértryggðra skuldabréfa.

Heildareftirspurn í útboðinu var 5.720 m.kr. og fjöldi tilboða var 41.

Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 26 bárust 17 tilboð að nafnvirði samtals 2.480 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,15-2,25%. Tilboð að nafnvirði 2.100 m.kr. á kröfunni 2,20% voru samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 5.920 m.kr. að nafnvirði eftir útgáfuna.  

Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 24 bárust 24 tilboð að nafnvirði samtals 3.240 m.kr., á ávöxtunarkröfu  á bilinu 5,79-6,00%. Öllum tilboðum var tekið í ARION CB 24. Heildarstærð flokksins verður 5.940 m.kr eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Ísland þann 13. febrúar 2019.

Nánari upplýsingar veitir Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, theodor.fridbertsson@arionbanki.is, s. 444 6760