Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða úr skuldabréfaútboðiLánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í LSS150434 og LSS151155 þann 23. janúar 2019. Uppgjör viðskipta fer fram 25. janúar 2019. Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 2.410.000.000 á bilinu 2,19% - 2,33%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.060.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,29%. Útistandandi fyrir voru ISK 42.522.152.565. Heildarstærð flokksins er nú ISK 43.582.152.565. Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 1.760.000.000 á bilinu 2,35% - 2,39%. Ákveðið var að afþakka öll tilboð. Heildarstærð flokksins er ISK 18.094.000.000. Nánari upplýsingar veitir: Örvar Þ. Ólafsson Sími: 515 4947 T-póstur: orvar@lanasjodur.is
|