English Icelandic
Birt: 2019-01-21 16:50:15 CET
Íslandsbanki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Islandsbanki hf.: Íslandsbanki bætir 50 milljónum sænskra króna við áður útgefið skuldabréf upp á 300 milljónir sænskra króna og 650 milljónum norskra króna við áður útgefið skuldabréf upp á 100 milljónir norskra króna

Íslandsbanki hefur í dag bætt við 50 milljónum sænskra króna og 650 milljónum norskra króna við neðangreind skuldabréf undir Global Medium Term Notes (GMTN) útgáfuramma sínum með eftirfarandi skilmálum:

Útgefandi: Íslandsbanki hf.
Upprunalegt nafnverð: SEK 300.000.000
Uppfært nafnverð: SEK 350.000.000
Gjalddagi: 28. júlí 2020
Skráning: Kauphöllin á Írlandi
ISIN: XS1940960625
Umsjónaraðili: Nordea

Útgefandi: Íslandsbanki hf.
Upprunalegt nafnverð: NOK 100.000.000
Uppfært nafnverð: NOK 750.000.000
Gjalddagi: 25. janúar 2022
Skráning: Kauphöllin á Írlandi
ISIN: NO0010842107
Umsjónaraðili: Danske Bank

Grunnlýsingu USD 2.500.000.000 GMTN útgáfurammans ásamt viðaukum má finna á vefsíðu fjárfestatengsla https://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/fjarmognun/gmtn/

Nánari upplýsingar veita:

Fjárfestatengsl – Gunnar Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665.

Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlegast skráðu þig hér: https://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/hafdu-samband/postlisti/

Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er leiðandi fjármálafyrirtæki á Íslandi með heildareignir sem nema 1.163 ma. kr. (8,5 milljarðar evra) og með 25-50% markaðshlutdeild á innanlandsmarkaði. Saga Íslandsbanka spannar 140 ár af þjónustu við lykilatvinnuvegi þjóðarinnar en á þessum tíma hefur bankinn byggt upp sérþekkingu á sviði ferðaþjónustu, sjávarútvegs og orku. Framtíðarsýn Íslandsbanka er að vera #1 í þjónustu og vinna þrjú viðskiptasvið þétt saman til að tryggja góð sambönd við viðskiptavini bankans. Til að koma enn betur til móts við þarfir viðskiptavina, þá hefur Íslandsbanki þróað margvíslegar nýjar stafrænar lausnir s.s. öpp fyrir bankaþjónustu og Kass. Á sama tíma rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið með 14 útibú staðsett á lykilstöðum um land allt. Fimmta árið í röð á Íslandsbanki ánægðustu viðskiptavinina á bankamarkaði samkvæmt niðurstöðu Íslensku ánægjuvogarinnar og þá var bankinn einnig útnefndur besti bankinn á Íslandi árið 2018 af Euromoney og einnig besti bankinn árið 2017 af The Banker. Íslandsbanki hefur BBB+/A-2 lánshæfismat frá S&P Global Ratings og BBB/F3 frá Fitch Ratings og er eini íslenski bankinn með lánshæfismat frá tveimur alþjóðlegum lánshæfismatsfyrirtækjum.www.islandsbanki.is

Fyrirvari
Framangreind fréttatilkynning gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er ábyrgð fjárfestis að reiða sig ekki seinna meir á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari  fréttatilkynningu  þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út.  Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.