Arion banki lýkur víxlaútboðiArion banki hf. lauk í dag, þriðjudag, útboði á víxlum til sex og fimm mánaða. Í heild bárust 13 tilboð upp á 2.620 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 2.220 milljónir kr. Í heild bárust 3 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 300 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,80% - 4,90%. Öllum tilboðum var hafnað í 5 mánaða víxilinn. Í heild bárust 10 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 2.320 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,80% - 4,90%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 2.220 milljónir á 4,87% flötum vöxtum. Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 18. janúar næstkomandi. Nánari upplýsingar veitir Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, theodor.fridbertsson@arionbanki.is, s. 444 6760
|