English Icelandic
Birt: 2019-01-15 16:47:05 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem þrír flokkar voru boðnir til sölu.

Heildartilboð í útboðinu voru 23 talsins og námu samtals 5.300 m. kr. að nafnverði.

Þrettán tilboð að fjárhæð 2.860 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu á bilinu 6,00%-6,08%. Tilboðum að fjárhæð 2.140 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 6,06%.  Heildarstærð flokksins verður 4.640 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Fimm tilboð að fjárhæð 1.220 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 24 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,14%-2,18%. Tilboðum að fjárhæð 520 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,15%. Heildarstærð flokksins verður 29.220 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Fimm tilboð að fjárhæð 1.220 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,12%-2,17%. Tilboðum að fjárhæð 920 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,16%.  Heildarstærð flokksins verður 32.580 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 22. janúar 2019. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.