English
Published: 2019-01-03 13:51:25 CET
Lykill fjármögnun hf.
Other information disclosed according to the rules of the Exchange

Lykill fjármögnun hf.: Útboð á víxlum 9. janúar 2019

Lykill fjármögnun hf. efnir til útboðs á víxlum miðvikudaginn 9. janúar 2019. Boðnir verða til sölu víxlar í nýjum 6 mánaða flokki LYKILL190715.

Fossar markaðir hf. hafa umsjón með útboðinu og kynnir það fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og verða skráðir í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Tekið er við tilboðum til kl. 16:00 miðvikudaginn 9. janúar og uppgjör viðskipta fer fram þann 15. janúar 2019. Tilboðum skal skilað á netfangið utbod@fossarmarkets.com.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b, 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra skuldabréfaflokka eru birt á vefsíðu félagsins: https://www.lykill.is/starfsemi/fjarfestatengsl/

Nánari upplýsingar veita:
Daði Kristjánsson, Fossar markaðir hf., dadi.kristjansson@fossarmarkets.com, s: 840 4145
Sighvatur Sigfússon, fjármálastjóri Lykils fjármögnunar hf., sighvatur@lykill.is, s: 540 1700