English Icelandic
Birt: 2018-12-11 17:07:19 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem þrír flokkar voru boðnir til sölu.

Heildartilboð í útboðinu voru 22 talsins og námu samtals 5.920 m. kr. að nafnverði.

Sex tilboð að fjárhæð 1.080 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu á bilinu 6,10%-6,18%. Tilboðum að fjárhæð 880 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 6,17%.  Heildarstærð flokksins verður 2.500 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Tólf tilboð að fjárhæð 4.040 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 24 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,19%-2,25%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,25%. Heildarstærð flokksins verður 28.700 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Fjögur tilboð að fjárhæð 800 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,22%-2,27%. Tilboðum að fjárhæð 600 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,26%.  Heildarstærð flokksins verður 31.660 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 18. desember 2018. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.