Eik fasteignafélag hf.: Niðurstöður fundar eigenda skuldabréfa í skuldabréfaflokknum EIK 15 1Fundur Eikar fasteignafélags með eigendum skuldabréfa í skuldabréfaflokknum EIK 15 1 var haldinn í dag, þann 7. desember 2018. Fyrir fundinum lá eftirfarandi dagskrá: 1. Tillaga um samþykki eigenda skuldabréfa í skuldabréfaflokknum EIK 15 1 á breyttum tilgangi Eikar fasteignafélags hf., en tillaga um breyttan tilgang verður lögð fyrir hluthafafund félagsins þann 12. desember 2018. Hinn nýi tilgangur sem óskað er samþykkis eigenda skuldabréfa í skuldabréfaflokknum EIK 15 1 er eftirfarandi: Tilgangur félagsins er: • Eignarhald fasteigna og fjárfestingar í fasteignatengdum félögum. • Útleiga og rekstur fasteigna, þar með talin hótelrekstur, viðhald fasteigna, endurbætur og þróun. • Viðskipti með fasteignir og eignarhluti í fasteignatengdum félögum. • Þjónusta við leigjendur. • Ávöxtun lausafjár og lánastarfsemi. • Annar skyldur rekstur. • Félaginu er heimilt að stunda starfsemi sína í gegnum dótturfélög. Fundurinn veitti samhljóða samþykki sitt fyrir breytingu á orðalagi samþykkta félagsins um tilgang þess. Fundinum var slitið kl. 9:10. Nánari upplýsingar veitir: Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is, s. 590-2200 / 820-8980
|