Eik fasteignafélag hf.: Eik fasteignafélag hf. boðar til fundar eigenda skuldabréfa í skuldabréfaflokknum EIK 15 1Fundur Eikar fasteignafélags með eigendum skuldabréfa í skuldabréfaflokknum EIK 15 1 verður haldinn klukkan 9:00 þann 7. desember 2018 næstkomandi á Hótel 1919, Pósthússtræti 2. Dagskrá: - Tillaga um samþykki eigenda skuldabréfa í skuldabréfaflokknum EIK 15 1 á breyttum tilgangi Eikar fasteignafélags hf., en tillaga um breyttan tilgang verður lögð fyrir hluthafafund félagsins þann 12. desember 2018.
Hinn nýi tilgangur sem óskað er samþykkis eigenda skuldabréfa í skuldabréfaflokknum EIK 15 1 er eftirfarandi: Tilgangur félagsins er: • Eignarhald fasteigna og fjárfestingar í fasteignatengdum félögum. • Útleiga og rekstur fasteigna, þar með talin hótelrekstur, viðhald fasteigna, endurbætur og þróun. • Viðskipti með fasteignir og eignarhluti í fasteignatengdum félögum. • Þjónusta við leigjendur. • Ávöxtun lausafjár og lánastarfsemi. • Annar skyldur rekstur. • Félaginu er heimilt að stunda starfsemi sína í gegnum dótturfélög. Atkvæðisréttur skuldabréfaeigenda EIK 15 1 miðast við stöðu á fundardegi. Skráning fundargesta og afhending fundargagna verður á fundarstað frá klukkan 8:30 á fundardegi. Nánari upplýsingar veitir: Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is, s. 590-2200 / 820-8980
|