Icelandic
Birt: 2018-11-29 18:21:02 CET
Hagar hf.
Innherjaupplýsingar

Samruni Haga, Olís og DGV samþykktur

Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt samruna Haga, Olís og fasteignafélagsins DGV. 

Kaupsamningar um viðskiptin voru undirritaðir 26. apríl 2017 með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakönnunar, samþykki Samkeppniseftirlitsins og samþykki hluthafafundar Haga fyrir aukningu hlutafjár.  Fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakönnunar var aflétt þann 13. júlí 2017 og hlutafjáraukning var samþykkt á aðalfundi Haga í júní 2017.

Þann 11. september 2018 var undirrituð sátt milli Haga hf. og Samkeppniseftirlitsins vegna kaupa Haga hf. á öllu hlutafé í Olíuverzlun Íslands hf. og fasteignafélaginu DGV ehf.  Eftir undirritun sáttarinnar fór fram mat á kaupendum þeirra eigna, sem Högum var gert að selja samkvæmt sáttinni, en þá þegar lágu allir kaupsamningar fyrir.  Þann 26. október 2018 var tilkynnt að óháður kunnáttumaður, sem Samkeppniseftirlitið skipaði, hefði metið kaupendur eignanna hæfa og að þeir uppfylltu öll skilyrði sáttarinnar.  Nú hefur Samkeppniseftirlitið metið kaupendur og farið yfir vinnu óháðs kunnáttumanns og einnig komist að þeirri niðurstöðu að kaupendur uppfylli öll skilyrði sáttarinnar og að þeir séu hæfir.  Þar með hefur öllum fyrirvörum verið aflétt og samruninn kemur því til framkvæmda.

Niðurstaðan er ánægjuleg.  Samruninn skapar fjölmörg tækifæri til að bæta þjónustu við viðskiptavini sameinaðs félags.  Rekstur Olís fellur mjög vel að rekstri Haga og skapar einstakan grundvöll til sóknar og ekki síður til aukinnar hagkvæmni í breyttu samkeppnisumhverfi.  Ráðgjafar Haga hafa metið samlegðaráhrif samrunans um 600 millj. króna á ársgrundvelli.

Kaupverð Olís og DGV er 10.668 millj. króna.  Alls eru 5.396 millj. króna greiddar með reiðufé og auk þess afhentir 111 millj. hlutir í Högum að andvirði 5.272 millj. króna.  EBITDA Olís árið 2017 var um 2.300 millj. króna og nettó vaxtaberandi skuldir rúmar 5.000 millj. króna.  Reiknað er með að vaxtaberandi skuldir samstæðunnar verði um 12.000 millj. króna eftir samruna. 

Hagar munu fljótlega eftir að samruninn er kominn til framkvæmda senda frekari upplýsingar um sameinað félag.  Ráðgjafar kaupanda í viðskiptunum voru Arctica Finance og Landslög.