Icelandic
Birt: 2018-11-29 13:00:00 CET
Reykjavíkurborg
Árshlutareikningur (Q1 og Q3)

Reykjavíkurborg – Árshlutareikningur janúar – september 2018

Reykjavíkurborg – Árshlutareikningur janúar – september 2018

Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar - september 2018 var afgreiddur í borgarráði í dag, fimmtudaginn 29. nóvember.

Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 8.166 mkr en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði jákvæð um 4.728 mkr á tímabilinu. Niðurstaðan er því 3.438 mkr betri en gert var ráð fyrir.  Betri rekstrarniðurstaða skýrist einkum af hærri tekjum af sölu byggingarréttar, sem var 3.099 mkr umfram áætlun.  Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 8.029 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 4.711 mkr eða 3.318 mkr umfram áætlun.  Þrátt fyrir að rekstrarniðurstaða A-hluta fyrir tímabilið janúar - september 2018 hafi verið betri en áætlanir gerðu ráð fyrir þá er það mat stjórnenda að ekki sé ástæða til að endurskoða útkomuspá ársins, sem birt var með frumvarpi að fjárhagsáætlun 2019.

Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A- og B-hluta, var jákvæð um 15.243 mkr en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 15.938 mkr.
Rekstrarniðurstaðan er því 695 mkr lakari en gert var ráð fyrir.  Helstu frávik frá áætlun samstæðu má rekja til lægri tekjufærðra matsbreytinga fjárfestingaeigna Félagsbústaða og hærri fjármagnsgjalda samstæðunnar vegna gangvirðisbreytinga innbyggðra afleiða í raforkusamningum hjá Orkuveitu. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 24.857 mkr sem er 4.516 mkr betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir.

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í lok september 619.908 mkr, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 315.500 mkr og eigið fé var 304.409 mkr en þar af var hlutdeild meðeigenda 16.270 mkr.  Eiginfjárhlutfall samstæðunnar er nú 49,1% en var 49,0% um síðustu áramót.

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, sem heldur utan um rekstur fagsviða og Eignasjóð.

Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru:  Orkuveita Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Slökkvilið höfuðborgar­svæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf.

Reykjavík, 29. nóvember 2018.

Nánari upplýsingar veitir
Birgir Björn Sigurjónsson fjármálastjóri Reykjavíkurborgar sími 693-9321.

Viðhengi


Reykjavikurborg - Arshlutareikningur januar - september 2018.pdf
Reykjavikurborg - Greinarger Fjarmalaskrifstofu me arshlutareikningi januar-september 2018.pdf