Icelandic
Birt: 2018-11-29 02:09:16 CET
Festi hf.
Reikningsskil

Festi hf: Leiðrétting á afkomu á 3. ársfjórðungi 2018

Festi hf. birti afkomu fyrir 3. ársfjórðung 2018 þann 28. nóvember 2018. Hagnaður félagsins og heildarhagnaður var vantalinn um 112 m.kr. Vaxtagjöld voru oftalin í árshlutareikningnum um 140 m.kr. og tekjuskattur vantalinn um 28 m.kr. Hagnaður félagsins á 3. ársfjórðungi var því 983 m.kr. og heildarhagnaður 1.004 m.kr. Hagnaður félagsins á fyrstu níu mánuðum ársins nam 1.731 m.kr. og heildarhagnaður 1.746 m.kr.

Eigið fé 30. september nam 25.624 m.kr. Langtímalán lækka um 140 m.kr., tekjuskattur til greiðslu hækkar um 28 m.kr. og eigið fé í efnahagsreikningi hækkar um 112 m.kr.

Meðfylgjandi er leiðréttur árshlutareikningur fyrir 3. ársfjórðung 2018 ásamt leiðréttri afkomutilkynningu.


Festi hf - Afkomutilkynning Q3 2018.pdf
Festi hf - Arshlutareikningur Q3 2018.pdf
Festi hf - Company announcement Q3 2018.pdf
Festi hf - Interim Financial Statment Q3 2018.pdf