English Icelandic
Birt: 2018-11-22 18:41:01 CET
Marel hf.
Niðurstöður hluthafafundar

Correction: Marel: Niðurstöður hluthafafundar 22. nóvember 2018

Leiðrétting: Í megintexta í enskri útgáfu tilkynningarinnar var dagsetning hluthafafundarins ranglega skrifuð sem 6. mars 2018, og átti réttilega að vera 22. nóvember 2018. 

___

Hluthafafundur Marel hf. var haldinn fimmtudaginn 22. nóvember 2018 í höfuðstöðvum félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ. 

Stjórnarformaður félagsins, Ásthildur Otharsdóttir ávarpaði fundinn fyrir hönd stjórnar.

Helstu niðurstöður fundarins
Allar tillögur stjórnar til hluthafafundarfundar voru samþykktar. Tvær tillögur voru á dagskrá fundarins, þ.e. tillaga um lækkun á eigin hlutum félagsins vegna undirbúnings mögulegrar tvíhliða skráningar félagsins, til hagsbóta fyrir hluthafa, og eins tillaga um heimild til stjórnar félagsins til þess að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Engin önnur mál voru borin upp á dagskrá fundarins. 

Samþykktir
Hluthafafundur samþykkti að lækka hlutafé félagsins um 52.983.076 kr., úr 735.568.997 kr. í 682.585.921 kr. að nafnverði. Lækkunin verður framkvæmd með lækkun á eigin hlutum félagsins sem nema framangreindri fjárhæð, að uppfylltum skilyrðum laga um hlutafélög.

Samþykkt var að breyta grein 2.1. í samþykktum félagsins og er hún nú svohljóðandi:  „Hlutafé félagsins er kr. 682.585.921.“.

Endurkaupaáætlun
Hluthafafundur samþykkti tillögu um heimild til stjórnar félagsins til að kaupa eigin hluti í félaginu með framkvæmd endurkaupaáætlunar, í skilningi laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, sbr. ákvæði viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. Fjöldi hluta sem keyptur skal samkvæmt endurkaupaáætluninni verður að hámarki 34.129.296 hlutir, en það jafngildir 5% af útgefnu hlutafé félagsins.

Vefur hluthafafundar
Allar frekari upplýsingar og gögn tengd hluthafafundinum má nálgast á vef félagsins: marel.com/hluthafafundur.  

Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita Tinna Molphy og Marinó Jakobsson í gegnum netfangið IR@marel.com eða í síma 563 8001. 


Viðhengi


2018.11.22 - Marel Chairmans Adress - vF.pdf
2018.11.22 - Samykktir hluthafafundar Marel hf. vF.pdf