Icelandic
Birt: 2018-11-09 15:03:32 CET
Alma íbúðafélag hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Almenna leigufélagið ehf.: Útboð á skuldabréfum 15. nóvember 2018

Almenna leigufélagið ehf. efnir til útboðs á skuldabréfum fimmtudaginn 15. nóvember næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í nýjum skuldabréfaflokki AL231124 og áður útgefnum skuldabréfaflokki AL260148.

Skuldabréfaflokkarnir AL260148 og AL231124 eru gefnir út undir útgáfuramma félagsins og eru veðtryggðir samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi. Skuldabréfaflokkurinn AL260148 er verðtryggður, til 30 ára, með jöfnum greiðslum og föstum 3,50% ársvöxtum. Áður hafa verið gefin út skuldabréf í AL260148 að nafnvirði 6.660.000.000 kr. og hafa þau verið tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Landsbankinn hf. og Kvika hf. sjá um viðskiptavakt á eftirmarkaði með skuldabréfin. Skuldabréfaflokkurinn AL231124 er verðtryggður, til 6 ára en endurgreiðsluferli afborgana fylgir 25 ára jafngreiðsluferli.

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem verður tekið í hverjum flokki. Almenna leigufélagið áskilur sér rétt til að taka eða hafna hvaða tilboði sem er í heild eða að hluta.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður fimmtudaginn 23. nóvember 2018.

Tilgangur útgáfunnar er endurfjármögnun á núverandi skuldum félagsins.

Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu og fjárfestar skulu skila tilboðum fyrir klukkan 16:00 fimmtudaginn 15. nóvember 2018 á netfangið verdbrefamidlun@landsbankinn.is

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b, 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Grunnlýsing og viðaukar við grunnlýsingu hafa verið birt í tengslum við útgáfuramma félagsins. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreinds skuldabréfaflokks eru birt á vefsíðu félagsins, www.al.is/#!/investors/bond-issuance.

Tilkynningar sem Almenna leigufélagið ehf. hefur birt í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Nánari upplýsingar veita:

Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri, í síma 848 5290 eða sigurdur@al.is

Gunnar S. Tryggvason s: 410 6709 / 821 2090 og í gegnum netfang Markaðsviðskipta Landsbankans vegna útboðsins: verdbrefamidlun@landsbankinn.is