English Icelandic
Birt: 2018-10-31 21:13:14 CET
Marel hf.
Árshlutareikningur (Q1 og Q3)

Marel 3F 2018: Góður tekjuvöxtur og 14,2% EBIT

Marel kynnir afkomu þriðja ársfjórðungs 2018

(Allar upphæðir eru í evrum)

Góður tekjuvöxtur og 14,2% EBIT

Helstu atriði af 3F 2018:

  • Pantanir á þriðja ársfjórðungi námu 267,7 milljónum evra (3F17: 295,6m).
  • Tekjur námu 282,0 milljónum evra (3F17: 247,0m).
  • EBIT* nam 40,0 milljónum evra (3F17: 37,6m), sem var 14,2% af tekjum (3F17: 15,2%).
  • Hagnaður nam 26,7 milljónum evra (3F17: 23,2m).
  • Hagnaður á hlut (EPS) var 3,94 evru sent (3F17: 3,29 evru sent).
  • Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 31,6 milljónum evra (3F17: 71,8m).
  • Skuldahlutfall (nettó skuldir/EBITDA) var x2,1 í lok september samanborið við x1,8 í lok annars ársfjórðungs. Markmið félagsins um fjármagnsskipan er að halda skuldahlutfalli milli x2-3. Marel gekk frá kaupunum á þýska framleiðandanum MAJA á þriðja ársfjórðungi fyrir kaupverðið 35,5 milljónir evra og keypti eigin bréf fyrir 30 milljónir evra.
  • Pantanabókin stóð í 510,8 milljónum evra við lok fjórðungsins (árslok 2017: 472,3m).

Töluvert ítarlegri umfjöllun um starfsemi, rekstur og afkomu félagsins má finna í enskri útgáfu fréttatilkynningarinnar (sjá viðhengi). Íslenska útgáfan veitir aðeins yfirlit yfir helstu þætti uppgjörsins, horfur, fjárfestafund og fjárhagsdagatal. 

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri:

„Við erum ánægð með rekstrarniðurstöðu þriðja ársfjórðungs sem og fyrstu níu mánuði ársins. Á fjórðungnum nam tekjuaukning á milli ára 14% og EBIT framlegð var 14,2%. Á fyrstu níu mánuðum ársins var tekjuvöxtur 17% og EBIT framlegð 14,6%. Hagnaður á hlut hefur aukist jafnt og þétt undanfarin fimm ár.

Á þriðja ársfjórðungi gengum við formlega frá kaupunum á MAJA að heildarvirði 35 milljónum evra og keyptum eigin bréf fyrir 30 milljónir evra. Fjárhagsstaða okkar er sterk og nettó skuldir nema um það bil tvisvar sinnum EBITDA.

Það eru áhugaverðir tímar á alþjóðamörkuðum í kjúklinga-, kjöt-, og fiskiðnaði. Viðskiptahindranir og umrót í alþjóðakerfinu mynda ósamræmi í framboði og eftirspurn matvæla innan heimshluta en á sama tíma er eftirspurn neytenda á heimsvísu að aukast. Þetta kann að hafa í för með sér minni nýfjárfestingar viðskiptavina okkar á næstu tveimur til þremur ársfjórðungum eftir kröftugan vöxt pantana í byrjun ársins. Neytendur leita í auknum mæli eftir öruggum og hagkvæmum matvælum og samhliða því eykst spurnin eftir hátæknilausnum til matvælavinnslu. Við störfum á ört vaxandi markaði og með sterkri markaðssókn og nýsköpun stefnir Marel að innri vexti umfram almennan markaðsvöxt.

Áform um skráningu hlutabréfa Marel í alþjóðlegri kauphöll ganga samkvæmt áætlun. Við höfum þrengt valkosti okkar niður í þrjár mögulegar kauphallir; Amsterdam, Kaupmannahöfn og Lundúnir. Nú er stefnt að tvíhliða skráningu þar sem hlutabréf Marel yrðu skráð í eina af ofangreindum kauphöllum til viðbótar við núverandi skráningu í íslensku kauphöllinni. Það er trú okkar að með því sé hagsmunum núverandi og verðandi hluthafa Marel best borgið.“ 

Hluthafafundur þann 22. nóvember 2018

Samhliða áætlunum félagsins um tvíhliða skráningu, gerir stjórn félagsins ráð fyrir að óska eftir heimild hluthafa á aðalfundi félagsins árið 2019 til að hækka heildarhlutafé félagsins um allt að 15%, í þeim tilgangi að styðja við árangursríka skráningu á erlendum markaði, virka verðmyndun og seljanleika bréfanna.

Til að samræma hagsmuni núverandi hluthafa og framtíðarhluthafa í tengslum við framan­greinda áformaða hlutafjárhækkun, í tengslum við áætlun félagsins um tvíhliða skráningu, leggur stjórn Marel nú fram tillögur til umfjöllunar á hluthafafundi þann 22. nóvember nk., annars vegar um lækkun hlutafjár félagsins og hins vegar um heimild til stjórnar félagsins til þess að setja upp formlega endurkaupaáætlun á eigin bréfum. Tillagan er í samræmi við lög um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, reglugerð um innherja­upplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005 og lög um hlutafélög nr. 2/1995.

Marel sækir fjármagn á þýska Schuldschein markaðinn

Marel sækir á nýja fjármagnsmarkaði til að auka fjölbreytileika í fjármögnun félagsins og hyggst gefa út óveðtryggt Schuldschein bréf. Núverandi lágvaxtaumhverfi gefur félaginu tækifæri til að nálgast langtíma fjármögnun á hagstæðum kjörum. Heildarupphæð fjármögnunarinnar verður að minnsta kosti 100 milljónir evra og verður fjárfestum boðið upp á bæði breytilega og fasta vexti til 5, 7 og 10 ára. Lánskjör ráðast ekki fyrr en söfnun áskrifta er lokið. Stefnt er að lokun útboðsins fyrir árslok og væntingar standa til að lánskjör hafi jákvæð áhrif á heildarfjármagnskostnað félagsins. Stjórnendur hafa falið ABN AMRO N.V, Bayerische Landesbank og Unicredit Bank AG að sjá um útboðið.

Horfur

Stjórnendur félagsins gera ráð fyrir kröftugum innri vexti og góðri rekstrarniðurstöðu í uppgjöri ársins 2018. Þó eru horfur til skemmri tíma heldur lakari en áður var gert ráð fyrir. Markaðsaðstæður hafa verið einstaklega góðar að undanförnu en eru nú meira krefjandi.

Marel stefnir að 12% meðalvexti árlega yfir tímabilið 2017-2026 sem byggir á öflugri markaðssókn og nýsköpun, samstarfi við lykilaðila og yfirtökum á fyrirtækjum.

  • Marel gerir ráð fyrir að almennur markaðsvöxtur nemi 4-6% til lengri tíma. Með sterkri markaðssókn og nýsköpun stefnir Marel að innri vexti umfram almennan markaðsvöxt.
  • Áframhaldandi traustur rekstur og sterkt sjóðstreymi getur stutt við 5-7% ytri meðalvöxt á ári.
  • Marel gerir ráð fyrir að hagnaður á hlut vaxi hraðar en tekjur.

Áætlaður vöxtur veltur á hagsveiflum og þeim tækifærum sem eru í boði hverju sinni og verður því ekki línulegur. Gera má ráð fyrir breytilegri afkomu milli ársfjórðunga vegna efnahagsþróunar, sveifla í pöntunum og tímasetningu stærri verkefna.

Afkomuefni

Ítarlegri umfjöllun um rekstrarafkomu má finna í enskri útgáfu fréttatilkynningar sem er í viðhengi. Sé misræmi á milli uppgjörstilkynninga félagsins á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda þar sem tilkynningar eru þýddar af ensku yfir á íslensku.

Fjárfestafundur

Fimmtudaginn 1. nóvember 2018 kl. 8.30 verður haldinn afkomufundur með markaðsaðilum og fjárfestum. Þar munu Árni Oddur Þórðarson, forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri.

Kynningarfundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins, Austurhrauni 9 í Garðabæ. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:00.

Fundinum verður einnig vefvarpað á www.marel.com/webcast. Nú verður í fyrsta sinn tekið við spurningum frá áhorfendum vefvarpsins. Til að senda inn spurningu þarf að smella á táknið efst í hægra horninu þegar vefvarpið hefst. Spurningum verður svarað í lok kynningarfundarins. Aðeins verða teknar spurningar frá þeim sem koma fram undir nafni. Því er mikilvægt að þátttakendur fylli út nafn, fyrirtæki og tölvupóstfang við innskráningu.

Fjárhagsdagatal

Marel mun halda aðalfund og birta árshluta- og ársuppgjör félagsins samkvæmt neðangreindu fjárhagsdagatali:

  • Hluthafafundur – 22. nóvember 2018
  • 4F 2018 – 6. febrúar 2019
  • Aðalfundur – 6. mars 2019

Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar.

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veitir Tinna Molphy og Marinó Þór Jakobsson í gegnum netfangið investors@marel.com og í síma 563 8001. 

Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi:

Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Við vekjum þess vegna athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar.

Gögn um markaðshlutdeild

Yfirlýsingar um markaðshlutdeild, þar með taldar þær sem varða samkeppnisstöðu Marel, byggjast á utanaðkomandi heimildum og gögnum, svo sem gögnum frá rannsóknastofnunum, iðnaðar- og sölunefndum og hópum, ásamt mati stjórnenda Marel. Séu upplýsingar ekki tiltækar fyrir Marel kunna slíkar yfirlýsingar að vera byggðar á áætlunum og mati utanaðkomandi aðila og/eða stjórnenda. Markaðsstaða er byggð á sölutölum nema annað sé tekið fram.

Sé misræmi á milli uppgjörstilkynninga félagsins á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda þar sem tilkynningar eru þýddar af ensku yfir á íslensku.

 

 

Viðhengi


Marel - 3Q18 Press Release - 31.10.2018.pdf
Marel - Condensed Consolidated Interim Financial Statements 30 September 2018.pdf
Marel - Q3 2018 Condensed Consolidated Interim Financial Statements - EXCEL.xlsx