Icelandic
Birt: 2018-10-31 19:02:05 CET
Origo hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Origo hf. – Söluferli Tempo ehf.

REYKJAVÍK - 31. október 2018 

Þann 2.10.2018 var tilkynnt til kauphallar um samkomulag og einkaviðræður um sölu á 55% hlut í Tempo til Diversis Capital og reiknað með að viðræðum lyki fyrir lok október.

Þó svo að viðræðum og áreiðanleikakönnun miði vel, mun endanlegur frágangur kaupsamnings hliðrast inn í nóvember.


ORIGO HF.
Origo. (NASDAQ OMX: Origo.IC) er samstæða fyrirtækja í upplýsingatækni. Origo er þjónustufyrirtæki og hlutverk þess felst í að aðstoða viðskiptavini að ná enn betri árangri í sínum rekstri með aðstoð upplýsingatækni, sérfræðiþekkingu starfsfólks og lipurri þjónustu. Hjá samstæðunni starfa um 550 manns. Dótturfélög Origo eru TEMPO ehf og Applicon AB. Hlutabréf Origo hf. eru skráð í Kauphöll Íslands. Nánari upplýsingar er að finna á www.origo.is

Til athugunar fyrir fjárfesta:
Origo vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna af birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar fréttatilkynningin er birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum.