Icelandic
Birt: 2018-10-24 18:25:06 CEST
Lánasjóður sveitarfélaga ohf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða úr skuldabréfaútboði

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í LSS150434 og LSS151155 þann 24. október 2018. Uppgjör viðskipta fer fram 26. október 2018.

Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 1.960.000.000 á bilinu 2,36% - 2,48%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.440.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,41%. Útistandandi fyrir voru ISK 40.037.152.565. Heildarstærð flokksins er nú ISK 41.477.152.565.

Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 920.000.000 á bilinu 2,41% - 2,46%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 620.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,44%. Útistandandi fyrir voru ISK 16.199.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 16.819.000.000.

Nánari upplýsingar veitir:
Örvar Þ. Ólafsson
Sími: 515 4947
T-póstur: orvar@lanasjodur.is