English Icelandic
Birt: 2018-10-24 10:15:00 CEST
Orkuveita Reykjavíkur
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Orkuveita Reykjavíkur - Niðurstaða úr skuldabréfaútboði

Orkuveita Reykjavíkur lauk í gær, 23. október 2018, útboði á nýjum skuldabréfum. Fossar Markaðir höfðu umsjón með útboðinu fyrir hönd OR. 

Heildareftirspurn í útboðinu nam samtals 3.550 m. kr. að nafnverði. 

Heildartilboð í flokkinn OR090546 voru samtals 720 m. kr. á bilinu 2,80% - 2,88%. Tilboðum að fjárhæð 420 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 2,85%. 

Heildartilboð í flokkinn OR090524 voru samtals 2.830 m. kr. á bilinu 2,55% - 2,85%. Tilboðum að fjárhæð 1.350 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 2,60%. 

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 30. október næstkomandi.

 

Nánari upplýsingar veita: 

Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Fjármála OR, sími 516-6100, ingvar.stefansson@or.is

Matei Manolescu, skuldabréfamiðlun Fossa markaða, sími 522 4008, netfang matei.manolescu@fossarmarkets.com