Niðurstaða á kaupum óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 19 0226 vegna skiptiútboðsSkiptiútboð fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl 11:00 í dag þar sem boðin voru til sölu óverðtryggð ríkisbréf í flokkunum RIKB 20 0205 gegn kaupum á RIKB 19 0226. Helstu niðurstöður á kaupum í RIKB 19 0226 gegn sölu á RIKB 20 0205: Alls bárust 4 gild tilboð að fjárhæð 816 m.kr. að nafnverði í flokk RIKB 20 0205. Alls voru 2 gild tilboð tekin fyrir 216 m.kr. að nafnverði Samþykkt verð er 100,975 Samtals var keypt í RIKB 19 0226 fyrir 213 m.kr. að nafnverði
|