English Icelandic
Birt: 2018-10-11 18:09:29 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem þrír flokkar voru boðnir til sölu.

Heildartilboð í útboðinu voru 18 talsins og námu samtals 3.200 m. kr. að nafnverði.

Ekkert tilboð barst í flokkinn LBANK CB 23.

Ellefu tilboð að fjárhæð 1.900 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 24 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,51%-2,57%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,57%. Heildarstærð flokksins verður 22.520 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Sjö tilboð að fjárhæð 1.300 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,55%-2,61%. Tilboðum að fjárhæð 1.100 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,60%.  Heildarstærð flokksins verður 29.920 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 18. október 2018. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.