Icelandic
Birt: 2018-10-08 13:18:35 CEST
Reykjavíkurborg
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Reykjavíkurborg - Útboð RVK 32 1

Reykjavíkurborg hefur ákveðið í samræmi við útgáfuáætlun 2018 að efna til útboðs á skuldabréfaflokknum RVK 32 1 miðvikudaginn 10. október. Heimild til lántöku á árinu 2018 er 6.611 m.kr. Búið er að taka lán á árinu 2018 fyrir 2.050 mkr að markaðsverði og því er ónýtt heimild 4.561 m.kr.

Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að ákveða útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Útboðið verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð bjóðast á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) mun ákvarða söluverð.

Heildarstærð RVK 32 1 fyrir þetta útboð nemur alls 3.820 m.kr. að nafnvirði.

Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 15. október 2018.

Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki eru umsjónaraðilar útboðsins og hafa einir rétt á tilboðsgerð. Tilboð skulu berast fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 10. október.

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðsskilmála í fylgiskjali:

Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 693-9321

 

Viðhengi


Reykjavikurborg Utboslysing RVK 32 1.pdf
Utgafulysing_skuldabrefa RVK 32 1.pdf