English Icelandic
Birt: 2018-10-03 19:08:37 CEST
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Arion banki hf. lauk í dag útboði á þremur markflokkum sértryggðra skuldabréfa.

Heildareftirspurn í útboðinu var 1.740 m. kr. og fjöldi tilboða var 15.

Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 48 bárust 3 tilboð að nafnvirði samtals 420 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,83-2,86%. Öll tilboð í ARION CBI 48 voru samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 7.180 m.kr. að nafnvirði eftir útgáfuna.  

Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 25 bárust 7 tilboð að nafnvirði samtals 580 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,47 - 2,52%. Öll tilboð í ARION CBI 25 voru samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 33.420 m.kr. eftir útgáfuna. 

Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 22 bárust 5 tilboð að nafnvirði samtals 740 m. kr., á ávöxtunarkröfu  á bilinu 6,09-6,14%.  Öllum tilboðum í ARION CBI 22 var hafnað að þessu sinni.

Um er að ræða stækkun á þegar útgefnum skuldabréfaflokkum sem hafa verið til viðskipta á Nasdaq Ísland. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Ísland þann 10. október 2018.

Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 113.720 m. kr. og þar af 21.800 m. kr á þessu ári.

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka haraldur.eidsson@arionbanki.is s: 856-7108.