English Icelandic
Birt: 2018-10-02 08:58:51 CEST
Arion banki hf.
Innherjaupplýsingar

Afkomuviðvörun: Neikvæð áhrif á afkomu þriðja ársfjórðungs

Vegna ófyrirséðra atburða gerir Arion banki hf. ráð fyrir að niðurfæra lán og greiða út ábyrgðir sem mun hafa neikvæð áhrif á rekstrarafkomu bankans á þriðja ársfjórðungi 2018. Áhrifin munu nema um 1,3 – 1,8 milljarði króna, að teknu tilliti til skatta, og mun hlutfall eiginfjárþáttar 1 lækka um u.þ.b. 0,2 prósentustig vegna þessa. Fyrirgreiðslurnar tengjast félagi sem hefur verið í viðskiptum við bankann og fyrirrennara hans um árabil.

Fjárhagsleg markmið bankans til næstu ára, t.a.m. varðandi þróun eiginfjár, haldast óbreytt. Að mati bankans er um einskiptisatburð að ræða sem hefur ekki áhrif á reglulegar tekjur og almennan rekstrarkostnað.  

Afkoma bankans fyrir þriðja ársfjórðung verður birt 31. október 2018.


Tengiliðir
Theódór Friðbertsson, fjárfestatengslum Arion banka, IR@arionbanki.is, s. 856 6760.
Haraldur Guðni Eiðsson, samskiptasviði Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.


Þessar upplýsingar eru birtar í samræmi við upplýsingaskyldu Arion banka hf. skv. reglugerð Evrópusambandsins um markaðssvik.