English Icelandic
Birt: 2018-09-18 17:42:43 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.

Heildartilboð í útboðinu voru 16 talsins og námu samtals 2.520 m. kr. að nafnverði.

Ellefu tilboð að fjárhæð 1.820 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 24 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,50%-2,58%. Tilboðum að fjárhæð 1.420 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,56%. Heildarstærð flokksins verður 20.620 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Fimm tilboð að fjárhæð 700 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,56%-2,60%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,60%. Heildarstærð flokksins verður 28.820 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 25. september 2018. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.