Icelandic
Birt: 2018-09-06 19:18:07 CEST
Félagsbústaðir hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Félagsbústaðir: Niðurstaða skuldabréfaútboðs

Lokuðu útboði Félagsbústaða hf. á skuldabréfum þann 6. september 2018 er lokið. Boðin voru til sölu skuldabréf í skuldabréfaflokkunum FB100366 og FB100366u.

Alls bárust tilboð í FB100366 að nafnverði 500 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,80%. Ákveðið var að taka engum tilboðum að þessu sinni. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 1.900 m.kr. í þessum flokki sem öll hafa verið tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Engin tilboð bárust í FB100366u að þessu sinni. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 250 m.kr. í þessum flokki sem öll hafa verið tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.


Nánari upplýsingar veita:

Auðun Freyr Ingvarsson framkvæmdastjóri Félagsbústaða hf., sími 520-1500, audun@felagsbustadir.is

Birgir Guðfinnsson, markaðsviðskiptum fjárfestingarbankasviðs Arion banka hf., sími 444-7337, verdbrefamidlun@arionbanki.is