English Icelandic
Birt: 2018-09-03 18:02:19 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstöður víxlaútboðs

Landsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur víxlaflokkum: LBANK 190211, LBANK 190311 og LBANK 190910.

Heildartilboð í útboðinu voru 13 talsins og námu samtals 1.500 m. kr.

Fimm tilboð að fjárhæð 500 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 190211 og voru vextir tilboða á bilinu 4,28%-4,40%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Sex tilboð að fjárhæð 800 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 190311 og voru vextir tilboða á bilinu 4,33%-4,49%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Tvö tilboð að fjárhæð 200 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 190910 og voru vextir tilboða á bilinu 4,65%-4,79%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar.