Icelandic
Birt: 2018-08-30 13:12:48 CEST
Landsbréf hf.
Árshlutareikningur - 6 mán.

Hagnaður Landsbréfa 417 milljónir króna á fyrri helmingi ársins 2018

Landsbréf hf. hafa í dag birt árshlutareikning sinn vegna rekstrar á fyrri hluta ársins 2018. Hreinar rekstrartekjur námu 939 milljónum króna á fyrri hluta ársins 2018, en námu 1.135 milljónum króna á sama tímabili á árinu 2017. Hagnaður eftir skatta af rekstri á fyrri hluta ársins nam 418 milljónum króna, samanborið við 556 milljón króna hagnað á sama tíma á síðasta ári. Eigið fé Landsbréfa í lok tímabilsins nam 3.581 milljónum króna og eiginfjárhlutfall reiknað samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki var 92,66%, en þetta hlutfall má ekki vera undir 8%. Í lok júní áttu tæplega 13 þúsund einstaklingar og lögaðilar fjármuni í sjóðum í stýringu Landsbréfa og voru eignir í stýringu um 152 milljarðar króna.

Landsbréf eru rekstrarfélag verðbréfasjóða og annarra sjóða um sameiginlega fjárfestingu, auk þess sem félagið hefur starfsleyfi til eignastýringar og fjárfestingaráðgjafar.

Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa segir:

„Rekstur Landsbréfa hefur gengið vel það sem af er ári. Þrátt fyrir að umhverfi íslenskra sjóðastýringarfyrirtækja hafi verið að mörgu leyti krefjandi á undanförnum misserum er rekstrarniðurstaða umfram áætlanir. Lækkun rekstrartekna og hagnaðar milli tímabila má að stærstum hluta rekja til lægri árangurstengdra þóknana af fagfjárfestasjóðum. Sjóðaframboð félagsins er fjölbreytt og er þar að finna sjóði sem henta flestum fjárfestum. Ánægjulegt er að sjá stöðuga fjölgun þeirra sem eru í reglulegum sparnaði í sjóðum félagsins. Landsbréf eru í fararbroddi á íslenskum fjármálamarkaði og hafa sjóðir félagsins á liðnum misserum almennt skilað fjárfestum góðri ávöxtun. Landsbréf munu halda áfram að leggja metnað sinn í að stýra þeim fjármunum sem félaginu er treyst fyrir á öruggan og markvissan hátt í þágu sjóðfélaga.

Frekari upplýsingar veitir Helgi Þór Arason framkvæmdastjóri Landsbréfa í síma 410 2500.

Viðhengi


Arshlutareikningur Landsbref 30. juni 2018.pdf