Icelandic
Birt: 2018-08-23 18:40:10 CEST
Eik fasteignafélag hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Birting 2. ársfjórðungs 2018 þann 30. ágúst og kynningarfundur þann 31. ágúst

Eik fasteignafélag hf. mun birta uppgjör 2. ársfjórðungs fyrir árið 2018 eftir lokun markaða fimmtudaginn 30. ágúst n.k.

Opinn kynningarfundur verður haldinn 31. ágúst n.k., klukkan 8:30 á Grand Hóteli í fundarherberginu Hvammur, Sigtúni 38. Boðið verður upp á léttan morgunmat frá kl. 8:00.

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar, mun kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu ásamt Lýð H. Gunnarssyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs.