Icelandic
Birt: 2018-08-16 11:12:22 CEST
Fagfjárfestasjóðurinn KLS
Árshlutareikningur - 6 mán.

Árshlutareikningur fagfjárfestasjóðsins KLS árið 2018

Fagfjárfestasjóðurinn KLS sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2013.

  • Hagnaður var af rekstri sjóðsins að fjárhæð 87 þús. kr. á tímabilinu samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum.
  • Hrein eign sjóðsins í júnílok 2018 nam 1,3 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
  • Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á fyrri helmingi ársins 2018, efnahagi hans 30. júní 2018 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á fyrri helmingi ársins 2018, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu

Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is

Nánari upplýsingar um árshlutareikning fagfjárfestasjóðsins KLS veitir Flóki Halldórsson, framkvæmdastjóri Stefnis, í síma 444 7464.

Viðhengi


SER - Arshlutareikn KLS 2018 30.6.2018_SIGN.pdf