Icelandic
Birt: 2018-08-15 11:32:06 CEST
TM hf.
Fjárhagsdagatal

TM - Uppgjör annars ársfjórðungs 2018

TM mun birta uppgjör annars ársfjórðungs 2018 eftir lokun markaða fimmtudaginn 23. ágúst og býður til kynningar á afkomu félagsins föstudaginn 24. ágúst kl. 8.30. Þar mun Sigurður Viðarsson forstjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum félagsins að Síðumúla 24, 4. hæð.

Árshlutareikning og afkomutilkynningu verður hægt að nálgast á vef félagsins, TM.is. Kynning á uppgjörinu verður einnig aðgengileg á sama stað við upphaf kynningarfundar.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í gegnum vefinn á slóðinni:

https://global.gotomeeting.com/join/711521557