English Icelandic
Birt: 2018-07-03 17:42:39 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstöður víxlaútboðs

Landsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur víxlaflokkum: LBANK 181210, LBANK 190110 og LBANK 190710.

Heildartilboð í útboðinu voru 12 talsins og námu samtals 1.820 m. kr.

Þrjú tilboð að fjárhæð 300 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 181210 og voru vextir tilboða á bilinu 4,30%-4,35%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Átta tilboð að fjárhæð 1.420 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 190110 og voru vextir tilboða á bilinu 4,30%-4,38%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 560 m. kr. á 4,36% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,8201.

Eitt tilboð að fjárhæð 100 m. kr. barst í flokkinn LBANK 190710 og voru vextir þess tilboðs 4,55%. Því tilboði var ekki tekið.

Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 10. júlí 2018.

Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar.