Icelandic
Birt: 2018-06-27 18:33:08 CEST
Lánasjóður sveitarfélaga ohf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða úr skuldabréfaútboði

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í LSS150434 og LSS151155 þann 27. júní 2018. Uppgjör viðskipta fer fram 29. júní 2018.

Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 1.460.000.000 á bilinu 2,50% - 2,61%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 600.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,50%. Útistandandi fyrir voru ISK 36.827.152.565. Heildarstærð flokksins er nú ISK 37.427.152.565.

Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 60.000.000 á 2,49%. Ákveðið var að afþakka tilboð í flokkinn.

Nánari upplýsingar veitir:
Örvar Þ. Ólafsson
Sími: 515 4947
T-póstur: orvar@lanasjodur.is