English Icelandic
Birt: 2018-06-06 19:47:08 CEST
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Arion banki hf. lauk í dag útboði á þremur markflokkum sértryggðra skuldabréfa.

Heildareftirspurn í útboðinu var 2.360 m.kr. og fjöldi tilboða var 19.

Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 48 bárust 2 tilboð að nafnvirði samtals 300 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,80-2,84%. Öll tilboð í ARION CBI 48 voru samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 5.160 m.kr. að nafnvirði eftir útgáfuna.  

Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 25 bárust 7 tilboð að nafnvirði samtals 1.040 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,71% - 2,75%. Öll tilboð í ARION CBI 25 voru samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 30.520 m.kr. eftir útgáfuna. 

Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 22 bárust 10 tilboð að nafnvirði samtals 1.020 m.kr., á ávöxtunarkröfu  5,47-5,54%.  Öll tilboð í ARION CB 22 voru samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 26.960 m.kr. eftir útgáfuna.

Um er að ræða stækkun á þegar útgefnum skuldabréfaflokkum sem hafa verið til viðskipta á Nasdaq Ísland. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Ísland þann 13. júní 2018.

Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 105.320 m.kr. og þar af 15.900 m.kr á þessu ári.

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka haraldur.eidsson@arionbanki.is s: 856-7108.