Icelandic
Birt: 2018-05-29 23:51:19 CEST
Kvika banki hf.
Innherjaupplýsingar

Kvika banki hf.: Kvika stækkar útgáfu skuldabréfs í flokknum KVB 17 02

Kvika hefur stækkað útgáfu á almennum skuldabréfum bankans í flokknum KVB 17 02 um 1.130 milljónir króna að nafnvirði. Heildartilboð í lokuðu útboði námu 1.310 milljónum króna og er stærð flokksins 2.160 milljónir eftir stækkun. Skuldabréfin eru með lokagjalddaga 26. október 2020 og bera fljótandi REIBOR vexti til eins mánaðar með 1,25% vaxtaálagi.

Nánari upplýsingar veitir Ármann Þorvaldsson forstjóri Kviku banka hf. í síma 540-3200.