Icelandic
Birt: 2018-05-08 22:56:11 CEST
Lykill fjármögnun hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lykill fjármögnun hf. lýkur skuldabréfaútboði

Lykill fjármögnun hf. hefur lokið skuldabréfaútboði í skuldabréfaflokkunum LYKILL 16 1 og LYKILL 17 1. Samhliða því bauðst fjárfestum að skipta skuldabréfum í óskráða flokknum LYKILL 15 1 fyrir skuldbréfaflokkinn LYKILL 16 1. Alls bárust tilboð að nafnvirði 3.720 m.kr.

Ákveðið var að taka tilboðum upp á 1.500 m.kr. að nafnvirði í óverðtryggða flokkinn LYKILL 16 1 og var öllum tilboðum tekið á hreina verðinu 100,00. Heildarstærð flokksins eftir útboðið er 5.080.000.000 kr. að nafnvirði. Samhliða því hefur félagið samþykkt að kaupa til baka skuldabréf í LYKILL 15 1 flokknum að nafnvirði 2.100m. kr. sem samsvarar 1.400m kr. að nafnvirði í LYKILL 16 1.

Ákveðið var að taka tilboðum upp á 2.220 m.kr. að nafnvirði í verðtryggða flokkinn LYKILL 17 1 og var öllum tilboðum tekið á hreina verðinu 100,33 sem samsvarar 3,85% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins eftir útboðið er 9.670.000.000 kr. að nafnvirði.

LYKILL 16 1 og LYKILL 17 1 eru skuldabréfaflokkar sem tryggðir eru með veði í útlánum og fjármögnunarsamningum Lykils fjármögnunar. Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er þriðjudagurinn 15.maí 2018. Óskað verður eftir því að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland þann dag.

Markaðsviðskipti Arctica Finance höfðu umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna.

Nánari upplýsingar veita:

Daði Kristjánsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., dadi@arctica.is, s: 840 4145
Arnar Geir Sæmundsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., arnar@arctica.is, s: 896 6566
Sighvatur Sigfússon, fjármálastjóri Lykils fjármögnunar hf., sighvatur@lykill.is, s: 540 1700