Landsbankinn hf.: Niðurstöður víxlaútboðs Landsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur víxlaflokkum; LBANK 181010, LBANK 181112 og LBANK 190510. Heildartilboð í útboðinu voru 16 talsins og námu samtals 2.000 m. kr. Þrjú tilboð að fjárhæð 300 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 181010 og voru vextir tilboða á bilinu 4,28%-4,35%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn. Tólf tilboð að fjárhæð 1.600 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 181112 og voru vextir tilboða á bilinu 4,28%-4,35%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 1.320 m. kr. á 4,34% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,8184. Eitt tilboð að fjárhæð 100 m. kr. barst í flokkinn LBANK 190510 og voru vextir þess tilboðs 4,55%. Því tilboði var ekki tekið. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 11. maí 2018. Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar.
|