English Icelandic
Birt: 2018-05-02 19:25:17 CEST
Arion banki hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Arion banki hf. lauk í dag útboði á þremur markflokkum sértryggðra skuldabréfa.

Heildareftirspurn í útboðinu var 4.120 m. kr. og fjöldi tilboða var 18.

Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 48 barst 1 tilboð að nafnvirði samtals 300 m.kr., á ávöxtunarkröfu á 2.77%. Það tilboð var samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 4.860 m.kr. eftir útgáfuna.  

Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 25 bárust 16 tilboð að nafnvirði samtals 3.660 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,66% - 2,72%. Öll tilboð í ARION CBI 25 voru samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 29.480 m.kr. eftir útgáfuna. 

Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 22 barst 1 tilboð að nafnvirði samtals 160 m. kr., á ávöxtunarkröfu  5,49%.  Það tilboð var samþykkt. Heildarstærð flokksins verður 25.940 m.kr. eftir útgáfuna

Um er að ræða stækkun á þegar útgefnum skuldabréfaflokkum sem hafa verið til viðskipta á Nasdaq Ísland. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Ísland þann 9 maí 2018.

Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 105.460 m. kr. og þar af 13.540 m. kr á þessu ári.

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka haraldur.eidsson@arionbanki.is s: 856-7108.