Icelandic
Birt: 2018-05-02 12:01:30 CEST
Lykill fjármögnun hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lykill fjármögnun hf.: Skuldabréfaútboð og skiptiútboð 8. maí 2018

Lykill fjármögnun hf. efnir til útboðs á skuldabréfum þriðjudaginn 8. maí næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í flokkunum LYKILL 16 1 og LYKILL 17 1. Þá mun eigendum óskráða skuldabréfaflokksins LYKILL 15 1 verða boðið að skipta bréfum sínum fyrir skráða skuldabréfaflokkinn LYKILL 16 1.

Allir flokkarnir eru tryggðir með veði í útlánum og fjármögnunarsamningum Lykils og hafa LYKILL 16 1 og LYKILL 17 1 báðir verið teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

LYKILL 16 1 er óverðtryggður flokkur sem ber fljótandi vexti (1M REIBOR + 1,10%) og greiðir jafnar mánaðarlegar greiðslur. Lokagjalddagi flokksins er 16. október 2023. Áður útgefin skuldabréf í flokknum eru að nafnverði 3.580.000.000 kr. LYKILL 16 1 verður boðinn út á föstu verði, 100,00 (pari), sem jafngildir 5,59% ávöxtunarkröfu miðað við núverandi eins mánaða REIBOR sem er 4,35%.

LYKILL 17 1 er verðtryggður skuldabréfaflokkur sem ber fasta 3,95% vexti og greiðir jafnar árlegar greiðslur. Lokagjalddagi flokksins er 15. maí 2024. Áður útgefin skuldabréf í flokknum eru að nafnverði 7.450.000.000 kr. LYKILL 17 1 verður boðinn út á fastri ávöxtunarkröfu 3,85% sem samsvarar hreina verðinu 100,33.

Eigendum skuldabréfaflokksins LYKILL 15 1 er boðið að skipta út bréfunum fyrir LYKILL 16 1 á genginu 100,00 (pari) í báðum flokkum. LYKILL 15 1 er óskráður óverðtryggður flokkur sem ber fljótandi vexti (1M REIBOR + 1,20%) og greiðir jafnar mánaðarlegar greiðslur. Lokagjalddagi flokksins er 15. nóvember 2020. Útgefin skuldabréf í flokknum eru að nafnverði 5.400.000.000 kr.

Markaðsviðskipti Arctica Finance hf. hafa umsjón með útboðinu. Skuldabréfin eru gefin út í 10 m.kr. einingum og verða skráð í Kauphöll. Lágmarkstilboð er 20.m.kr. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Gjalddagi áskrifta er þriðjudagurinn 15. maí 2018.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b, 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra flokka skuldaskjala eru birt á vefsíðu félagsins: https://www.lykill.is/starfsemi/fjarfestatengsl/

Nánari upplýsingar veita:
Daði Kristjánsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., dadi@arctica.is, s: 840 4145
Arnar Geir Sæmundsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., arnar@arctica.is, s: 896 6566

Sighvatur Sigfússon, fjármálastjóri Lykils fjármögnunar hf., sighvatur@lykill.is, s: 540 1700