Icelandic
Birt: 2018-04-30 19:51:31 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hluta

REITIR: Heildarfjöldi hluta og atkvæða

Í 84. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 kemur fram að ef útgefandi hækkar eða lækkar hlutafé sitt eða fjölgar eða fækkar atkvæðum skal hann, á síðasta viðskiptadegi þess mánaðar er breytingarnar eiga sér stað, birta opinberlega heildarfjölda hluta og heildarfjölda atkvæða.

Þann 24. apríl sl. tilkynntu Reitir um að lögformleg skilyrði hlutafjárlækkunar þeirrar sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 13. mars 2018 hefðu verið uppfyllt og lækkunin skráð í Fyrirtækjaskrá.

Heildarfjöldi hluta og heildarfjöldi atkvæða er þar af leiðandi 706.356.201 kr. að nafnverði.