Icelandic
Birt: 2018-04-30 18:42:19 CEST
TM hf.
Fjárhagsdagatal

TM - Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2018

TM mun birta uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2018 fyrir opnun markaða þriðjudaginn 8. maí og býður til kynningar á afkomu félagsins sama dag kl. 16.00. Þar mun Sigurður Viðarsson forstjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum félagsins að Síðumúla 24, 4. hæð.

Árshlutareikning og afkomutilkynningu verður hægt að nálgast á vef félagsins TM.is. Kynning á uppgjörinu verður einnig aðgengileg á sama stað við upphaf kynningarfundar.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í gegnum vefinn á slóðinni: https://global.gotomeeting.com/join/660031645