Icelandic
Birt: 2018-04-30 18:00:00 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í 17. viku 2018 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.301.825 eigin hluti fyrir 119.981.623 kr. eins og hér segir:

DagsetningTímiKeyptir
hlutir
Viðskipta-
verð
Kaup-
verð
Eigin hlutir
eftir viðskipti
 
23.4.201810:59200.00091,918.380.0003.025.831 
23.4.201811:031.82591,3166.6233.027.656 
24.4.201809:32200.00092,318.460.0003.227.656 
25.4.201809:32200.00092,818.560.0003.427.656 
26.4.201809:41200.00092,818.560.0003.627.656 
26.4.201815:24150.0009213.800.0003.777.656 
27.4.201809:43150.00091,713.755.0003.927.656 
27.4.201809:47200.00091,518.300.0004.127.656 
Samtals 1.301.825 119.981.623  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 26. mars 2018, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 22. mars 2018.                                         
                                         
Reitir hafa nú keypt samtals 4.127.656 hluti í félaginu sem samsvarar 25,02% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 370.830.372 krónum sem samsvarar 24,72% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 4.127.656 hluti, eða 0,58% af heildarhlutafé félagsins.                                        
                                         
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 16.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða 31. janúar 2019. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.