Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða úr skuldabréfaútboði
Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í LSS150434 og LSS151155 þann 25. apríl 2018. Uppgjör viðskipta fer fram 27. apríl 2018. Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 2.940.000.000 á bilinu 2,39% - 2,47%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.610.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,44%. Útistandandi fyrir voru ISK 34.507.152.565. Heildarstærð flokksins er nú ISK 36.117.152.565. Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 1.050.000.000 á bilinu 2,46% - 2,49%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 320.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,46%. Útistandandi fyrir voru ISK 13.352.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 13.672.000.000. Nánari upplýsingar veitir: Örvar Þ. Ólafsson Sími: 515 4947 T-póstur: orvar@lanasjodur.is
|