Icelandic
Birt: 2018-04-24 16:21:50 CEST
Reitir fasteignafélag hf.
Innherjaupplýsingar

REITIR: Kaup á fasteignafélaginu Vínlandsleið ehf.

Reitir fasteignafélag hf. hefur ákveðið að ganga til samninga við eigendur Vínlandsleiðar ehf., um kaup Reita á félaginu.

Heildarvirði kaupanna er samtals 5.900 m.kr. og verður að fullu fjármagnað með handbæru fé, lánsfé og yfirtöku áhvílandi skulda. Um er að ræða rúmlega 18.000 leigufermetra af vönduðu húsnæði. Þessar fasteignir eru Vínlandsleið 2-4, 6-8, 12-14 og 16 auk Norðlingabrautar 14.

Eignirnar eru í útleigu til 12 aðila með 100% útleiguhlutfall. 82% leigutekna eru við fimm opinbera aðila eða aðila sem eru á fjárlögum ríkisins en þeir eru: Sjúkratryggingar Íslands, Matís ohf., Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, Lyfjastofnun og Fjölmennt. Leigutekjur á ársgrunni nema um 440 m.kr. og er meðaltími leigusamninga um 13,5 ár. Leiða kaupin til þess að áætlaður rekstrarhagnaður (NOI) Reita hækkar um 350 m.kr. á ársgrundvelli.

Afhending eignanna mun fara fram þegar fyrirvörum vegna viðskiptanna hefur verið aflétt en fyrirvarar eru gerðir um niðurstöður áreiðanleikakannana, samþykki Samkeppniseftirlitsins og samþykki stjórnar Reita á kaupunum.

Ráðgjafi seljanda var fyrirtækjaráðgjöf KPMG.

Nánari upplýsingar veita:
Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita fasteignafélags í síma 660 3320
Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri Reita fasteignafélags í síma 669 4416