Icelandic
Birt: 2018-04-11 18:39:51 CEST
Lykill fjármögnun hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lykill fjármögnun hf.: Niðurstaða víxlaútboðs

Lykill fjármögnun hefur lokið útboði á sex mánaða víxlum í nýjum flokki, LYKILL181015. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 520 m.kr. Heildareftirspurn í útboðinu nam 640 m.kr.

Víxlarnir voru seldir á 4,75% flötum vöxtum. Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er mánudagurinn 16. apríl 2018.

Markaðsviðskipti Arctica Finance hf. höfðu umsjón með útboðinu.

Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 16. apríl 2018.

Nánari upplýsingar veita:

Daði Kristjánsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., dadi@arctica.is, s:840 4145

Arnar Geir Sæmundsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., arnar@arctica.is, s:896 6566

Sighvatur Sigfússon, fjármálastjóri Lykils fjármögnunar hf., sighvatur@lykill.is, s:540 1700